Fyrstu flutningar vindmylluhluta í Vaðölduver gengu vel
Fyrstu flutningar vindmylluhluta fyrir Vaðölduver hófust aðfaranótt 7. maí þegar stórir íhlutir fyrir fyrsta vindorkuver Íslands voru fluttir frá Þorlákshöfn upp að framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Um er að ræða umfangsmikla og krefjandi flutninga sem munu standa yfir næstu vikur. Flutningsleiðin er um 130 kílómetrar að lengd og liggur um fimm sveitarfélög. Alls verða farnir 350–400 stakir flutningar þar sem stærstu flutningslestirnar geta orðið allt að 250 metra langar.
Í fyrstu ferðinni voru meðal annars fluttir spaðar, turnhlutar og hlutar rafala fyrir vindmyllurnar. Samkvæmt Landsvirkjun gekk fyrsti flutningurinn vel og allar áætlanir stóðust.
Umfangsmikill undirbúningur
Mikill undirbúningur hefur farið fram vegna verkefnisins, bæði við skipulagningu flutninga og framkvæmdir á flutningsleiðinni. Á nokkrum stöðum hefur þurft að breikka akstursrými, aðlaga vegamót og fjarlægja eða færa ljósastaura, skilti og aðra innviði til að tryggja örugga framkvæmd flutninganna.
Flutningarnir fara að jafnaði fram sex nætur vikunnar og er gert ráð fyrir að þeir standi yfir næstu 7–9 vikur. Fyrir hverja vindmyllu þarf 13 leyfisskylda flutninga.
Nánar má lesa um flutningana hér
Fyrsta vindorkuver landsins
Vaðölduver verður fyrsta vindorkuver Íslands og rís austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu. Þar verða reistar 28 vindmyllur frá þýska framleiðandanum Enercon og er stefnt að því að helmingur þeirra verði gangsettur haustið 2026. Gert er ráð fyrir að vindorkuverið verði að fullu komið í rekstur fyrir lok árs 2027.
Vindorkuverið verður reist á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar þar sem fyrir eru sjö vatnsaflsstöðvar í rekstri. Með verkefninu skapast tækifæri til að nýta samlegð vatnsafls og vindorku á svæðinu.
Aðkoma Verkís
Verkís kemur að verkefninu með fjölbreyttum hætti í tengslum við uppbyggingu Vaðölduvers. Hluti af verkefninu felst í úttektum og minniháttar breytingum á vegum og innviðum á flutningsleið vindmylluhlutanna til að tryggja örugga framkvæmd flutninganna.
Verkefnið hefur meðal annars snúið að aðlögun vegamóta, breikkun akstursrýmis og öðrum úrbótum á völdum köflum flutningsleiðarinnar sem liggur frá Þorlákshöfn að framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu.
Samhliða uppbyggingu Vaðölduvers stendur einnig yfir bygging nýs þjónustuhúss Landsvirkjunar á Hellu sem mun þjóna starfsemi tengdri vindorkuverinu. Fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin 6. maí síðastliðinn.

Í húsinu verður meðal annars aðstaða fyrir starfsfólk Enercon, starfsstöð Landsvirkjunar, verkstæði og geymslur fyrir varahluti og búnað tengdan rekstri vindorkuversins.
Verkís sér um hönnun þjónustuhússins sem verður Svansvottað og gegnir lykilhlutverki í framtíðarrekstri og þjónustu við Vaðölduver.
