Skip to content
06/05/2026

Verkís á Fagþingi hita-, vatns- og fráveitu

Fagþing 2026

Verkís tekur þátt í Fagþingi hita-, vatns- og fráveitu sem fram fer í Hljómahöll Reykjanesbæ dagana 7. – 8. maí. Verkís mun taka þátt í vöru- og þjónustusýningu þingsins með bás þar sem sérfræðingar Verkís á sviði orku- og veitumála munu standa vaktina báða dagana.




Þrír fulltrúar Verkís verða með erindi á þinginu í ár. Einar Benediktsson, vél- og orkutæknifræðingur hjá Verkís ásamt Óla Þór Jónsyni hitaveitustjóra hjá Rarik munu fjalla um Hitaveitu Rarik í Dalabyggð. Erindið fjallar um endurbætur á hitaveitukerfi Rarik í Dalabyggð, farið yfir sögu og virkni veitunnar.

Ragnheiður Ingólfsdóttir og Vala Jónsdóttir, umhverfisverkfræðingar hjá Verkís munu fjalla um Kólnunarferil bakvatns hitaveitu í regnvatnskerfi. Bakvatni hitaveitu er að öllu jöfnu veitt í skólpkerfi með tilheyrandi rekstrarkostnaði dælinga og skólphreinsunar. En áhyggjur eru til staðar af mögulegri hitamengun ef bakvatni hitaveitu Veitna (um 32° heitt) er veitt í regnvatnskerfin og í yfirborðsfarvegi. Í fyrirlestrinum fara þær yfir skoðun Verkís á áhrifum af því að tengja bakvatn í regnvatnskerfi og yfirborðsvatn í stað skólpkerfis.

Sjá nánar í dagskrá hér.

Fagþing hita-, vatns- og fráveitu er líflegur vettvangur fyrir fólk í orku- og veitugeiranum að koma saman og fræðast, tengjast og hafa gaman. Yfir 70 fyrirlestrar verða á þinginu ásamt 17 sýnendum. Nánar um þingið, dagskrá og sýnendur má finna á vefsíðu þingsins.

Þjónusta Verkís :

Hitaveitur

Fráveitur

Vatnsveitur

Blágrænar ofanvatnslausnir

Heimsmarkmið

Fagþing 2026