1. Skilgreiningar:
- Samkomulag um þjónustu/eftirlit/úttekt: Skriflegur samningur um þjónustu/ eftirlit/úttekt, hvort sem er tímabundið eða ótímabundið milli Verkís og viðskiptavinar, staðfest á lögmætu formi, t.d. rafrænt.
- Samningsaðilar: Verkkaupi og Verkís.
- Verkís: Verkís hf. og hver og einn hluthafi, stjórnarmaður eða starfsmaður, eftir því sem við , og hver sú lögpersóna sem Verkís ræður yfir eða á svo sem dótturfélag.
- Verkefnateymi: Hópur starfsmanna Verkís eða á vegum Verkís, sem vinnur í viðkomandi verkefni og hefur aðgang að gögnum þess.
- Verkefni: Ráðgjöf, hönnun, þjónusta, eftirlit, úttekt – ekki tæmandi talning.
- Verkkaupi: Aðili sem óskar eftir og gerir samning við Verkís um tiltekið verk, hönnun, þjónustu, ráðgjöf, eftirlit og/eða úttekt.
- Verksamningur/ráðgjöf: Skriflegur samningur um tiltekið afmarkað verk milli Verkís og verkkaupa.
Hér eftir eru verksamningur/ráðgjöf og samkomulag um þjónustu/eftirlit/úttekt sameiginlega nefnd „samningur”.
2. Skilmálar, gildistaka og breytingar
Almennir skilmálar Verkís hf., kt. 611276-0289, gilda í viðskiptum milli Verkís og verkkaupa. Þeir hafa að geyma stöðluð ákvæði um réttindi og skyldur aðila nema um annað sé sérstaklega samið. Skilmálar þessir eru gefnir út af Verkís og gilda þar til nýir skilmálar taka gildi.
Í ákveðnum tilvikum gilda auk þess sérstakir skilmálar/staðlar um viðskipti milli aðila. Komi upp ósamræmi milli skilmála þessara og sérstakra skilmála/staðla skulu ákvæði þeirra síðarnefndu gilda. Viðskiptavinir Verkís skulu kynna sér þær reglur og/eða þá skilmála/staðla sem gilda um viðkomandi viðskipti. Samningar við Verkís þar sem sérstaklega er samið um frávik frá þessum almennu skilmálum ganga framar þessum skilmálum.
Verkís er heimilt að gera breytingar á skilmálum þessum hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara.
Almennir viðskiptaskilmálar Verkís eru birtir á heimasíðu: www.verkis.is.
3. Efni samnings
Verkís áskilur sér rétt, í vissum tilfellum, að gera áreiðanleikakönnun á verkkaupa með því að óska eftir ýmsum fjárhagsupplýsingum frá t.d. Creditinfo. Við undirritun samnings telst verkkaupi hafa samþykkt almenna viðskiptaskilmála þessa sem og aðra skilmála sem tilheyra viðkomandi viðskiptum. Þá er Verkís heimilt að gera áreiðanleikakannanir vegna laga um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eftir því sem við á.
Við samningsgerð getur Verkís byggt á mismunandi ÍST stöðlum eftir atvikum. Í þessum samningum eru verk eða þjónusta skilgreind sem um er samið á milli Verkís og verkkaupa. Þessir almennu viðskiptaskilmálar gilda um verk sem sérstaklega er samið um nema annað sé tekið fram. Komi fram misræmi milli samnings og almennra viðskiptaskilmála Verkís um tiltekin atriði skal samningurinn gilda.
Hver liður eða skilmáli í samningnum og þessum almennu viðskiptaskilmálum er aðskilið og sjálfstætt ákvæði. Verði eitthvert ákvæði dæmt eða úrskurðað ógilt, ólögmætt eða óframkvæmanlegt, af dómstólum eða þar til bærum yfirvöldum, skulu önnur ákvæði halda fullu gildi og virkni að því marki sem lög leyfa.
4. Þjónusta og skyldur Verkís
Þjónusta Verkís byggir á gildum fyrirtækisins sem birt eru á heimasíðu Verkís og miðar að því að viðskiptavinurinn fái afurðir, þjónustu og verk afhent í samræmi við umsamin gæði, verð og tíma.
Ráðgjöf sem byggir á mati eða spám sem Verkís veitir sem hluta þjónustunnar felur ekki í sér ábyrgð Verkís um að spár, sviðsmyndir eða mat á líkindum er varða atvik eða aðstæður rætist í framtíðinni.
Verkís má ekki framselja til annars aðila þau réttindi eða þær skyldur sem af samningi leiðir nema verkkaupi hafi veitt til þess skriflegt samþykki.
Verkís er heimilt að ráða undirverktaka til framkvæmdar á einstökum verkþáttum gerist þess þörf, og skal tilkynna verkkaupa um hverjir þeir undirverktakar eru og hvert þeirra hlutverk er. Þegar undirverktaki kemur að verkefninu í hvaða tilgangi sem er, skal litið svo á að verk undirverktakans sé hluti verkefnisins, eftir sem áður skal Verkís hafa eftirlit með verkefninu og gera verkkaupa grein fyrir framgangi þess.
Við framkvæmd samnings kann Verkís að verða áskynja um upplýsingar sem eru viðkvæmar fyrir starfsemi eða málefni verkkaupa („trúnaðarupplýsingar“). Við meðferð slíkra trúnaðarupplýsinga mun Verkís fylgja lögum, stjórnvaldsreglum og öðrum ákvæðum um meðferð trúnaðarupplýsinga sem Verkís ber að fylgja.
Framangreind trúnaðarskylda á ekki við um upplýsingar sem hafa verið gerðar opinberar með lögmætum hætti eða án aðkomu Verkís eða sem skylt er að láta uppi samkvæmt lögum, stjórnvaldsreglum eða dómsúrskurði. Verkís er heimilt að láta uppi trúnaðarupplýsingar þegar nauðsyn krefur gagnvart vátryggingafélagi eða lögmönnum og ráðgjöfum í tengslum við starfsábyrgðartryggingar Verkís eða rekstur dómsmála, gegn sömu trúnaðarskyldu.
Verkís leggur sig fram um að fara með allar persónuupplýsingar skv. ákvæðum gildandi laga sem og persónuverndarstefnu eins og hún er birt á heimasíðu Verkís á hverjum tíma.
Í tengslum við markaðssetningu, auglýsingu eða sölu á þjónustu kann Verkís að óska eftir að skýra frá, með almennum hætti, að Verkís hafi unnið fyrir verkkaupa.
5. Þjónusta og skyldur verkkaupa
Verkkaupi skal leggja fram tímanlega fullnægjandi og réttar forsendur og nauðsynleg gögn til verkefnis. Óski verkkaupi eftir að breyta forsendum verkefnis skal hann tilkynna það skriflega til Verkís án ástæðulauss dráttar. Sama á við um allar breytingar og ákvarðanir sem hafa áhrif á vinnu Verkís. Tafir og tímaaukning sem verða á verki, sem verkkaupi er ábyrgur fyrir, greiðir hann fyrir samkvæmt gjaldskrá Verkís á hverjum tíma eða umsömdu verði. Allar breytingar skulu vera skriflegar og samþykktar af báðum aðilum.
Verkkaupi ber ábyrgð á stjórn, starfsemi og rekstri fyrirtækis síns, sem og ákvörðunum sínum sem hafa áhrif á verkefnið, afurðir verkefnisins og hagsmuni verkkaupa.
Verkkaupi má ekki framselja til annars aðila þau réttindi eða þær skyldur sem af samningi leiðir nema Verkís hafi veitt til þess skriflegt samþykki.
Verkkaupa er ekki heimilt að dreifa afurð Verkís í breyttri, aðlagaðri eða styttri mynd nema að fengnu skriflegu samþykki Verkís. Ef verkkaupi lætur af hendi einhverja afurð verkefnisins, að hluta eða öllu leyti til þriðja aðila, ber honum að tilkynna það til Verkís skriflega, nema sambærilegir fyrirvarar komi fram í afurðinni:
- Að vinna Verkís hafi verið unnin fyrir verkkaupa og eingöngu í hans þágu í samræmi við samningsákvæði.
- Afurðin hafi ekki verið ætluð til afnota fyrir aðra og að því marki sem lög framast leyfa beri Verkís enga ábyrgð gagnvart þriðja aðila, hvorki á beinu né óbeinu tjóni, innan eða utan samninga, eða annars konar ábyrgð, í tengslum við þjónustuna eða afurðir hennar.
6. Umfang verks og viðbótarverk
Komi í ljós að skilgreint umfang verkefnis útheimti meiri vinnu eða kostnað en upphaflega var gert ráð fyrir, t.d. ef umfang verks reynist meira en veittar upplýsingar gáfu til kynna, fullnægjandi forsendur voru ekki veittar eða viðskiptavinur óskar eftir frekari þjónustu, skal Verkís án ástæðulausrar tafar upplýsa verkkaupa um breyttar forsendur. Að því uppfylltu skal verkkaupi greiða sérstaklega fyrir aukna vinnu og útlagðan kostnað samkvæmt gjaldskrá Verkís eða sérstöku samkomulagi. Ef verkkaupi er neytandi í skilningi laga um þjónustukaup gilda jafnframt ákvæði laga um þjónustukaup um upplýsingaskyldu og viðbótarverk.
7. Hugverka- og eignarréttur
Hugverka- og eignarréttur Verkís er til samræmis við lög nr. 73/1972 Höfundarlög og ÍST 35:2018.
Öll hugverkaréttindi að verkefninu og afurðum þess, þar með talinn höfundarréttur, hönnunarréttur, einkaleyfi og önnur hugverkaréttindi, sem verða til við framkvæmd verkefnisins af hálfu Verkís, með hvaða hætti sem er og á hvaða formi sem er, skulu vera eign Verkís, svo og eignarréttur að vinnuskjölum Verkís. Verkkaupi öðlast eignarrétt að afurð verkefnisins á efnislegu formi við fullnægjandi greiðslu til Verkís fyrir afurðina og hefur heimild til að nota hana á þann hátt sem samið hefur verið um, en slíkt framsal efnislegs eintaks felur ekki í sér framsal á hugverkaréttindum Verkís. Í því skyni að veita verkkaupa og öðrum viðskiptavinum þjónustu, er Verkís heimilt að nota, þróa og skiptast á þekkingu, reynslu og verkkunnáttu sem orðið hefur til við framkvæmd verkefnisins. Verkís er heimilt að nýta almennar upplýsingar úr verkefninu í gagnagrunna sem Verkís á aðild að.
Gögn úr verkefnum Verkís skal ekki birta opinberlega nema að höfðu samráði við Verkís og er í því skyni skylt að geta nafns Verkís.
Fari verkkaupi fram á að Verkís noti tæki, búnað, hugbúnað eða aðrar eignir í eigu verkkaupa eða sem hann hefur heimild til notkunar á, við framkvæmd verkefnis, ber verkkaupi ábyrgð á að notkun þeirra henti fyrir framkvæmd verkefnisins og brjóti ekki í bága við hugverkaréttindi eða önnur réttindi þriðja aðila.
8. Upplýsingagjöf
Starfsfólk Verkís eru bundin þagnarskyldu um það er varðar hagi viðskiptavina og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og ætla má að leynt skuli fara.
Verkkaupi skal, án ástæðulauss dráttar, láta Verkís í té allar upplýsingar og skýra frá atvikum sem hann kann að verða áskynja um og kunna að varða þjónustuna. Verkkaupi ber ábyrgð á því að sú upplýsingagjöf sé fullnægjandi og að upplýsingarnar séu réttar og nákvæmar. Ef vanræksla verkkaupa leiðir til tafa, aukins kostnaðar eða annars tjóns, beins eða óbeins, fyrir Verkís, skal verkkaupi bera fulla ábyrgð á því.
Verkís er heimilt að byggja á munnlegum eða skriflegum fyrirmælum, beiðnum, tilkynningum og upplýsingum frá hverjum þeim sem Verkís veit eða hefur rökstudda ástæðu til að ætla að hafi heimild verkkaupa til að eiga samskipti við Verkís í tengslum við verkefnið.
Samskipti Verkís við verkkaupa geta farið fram með rafrænum hætti, svo fremi að verkkaupi sætti sig við að bera ábyrgð á þeirri áhættu sem slíkum samskiptum fylgir og að því tilskildu að verkkaupi viðhafi fullnægjandi öryggi rafrænna gagna. Verkkaupi ber ábyrgð á öryggi gagna í vörslu hans, þar á meðal upplýsingum í hans vörslu sem koma frá Verkís.
Verkís ber ekki ábyrgð gagnvart verkkaupa á tapi eða tjóni hans, beinu eða óbeinu, sem stafar af sviksamlegu atferli, rangfærslum, þögn eða aðgerðarleysi varðandi atriði sem varða verkefnið eða öðrum ágöllum á veittum upplýsingum, hvort sem þeir eru sök verkkaupa eða annarra upplýsingagjafa, nema hið sviksamlega atferli, rangfærslan, þögnin eða ágallinn hafi mátt vera Verkís bersýnilega augljós án frekari athugunar.
Verkís kann að veita þjónustu, eða vera beðið um að veita þjónustu, öðrum aðila eða aðilum, þar á meðal samkeppnisaðilum verkkaupa eða aðilum sem eiga gagnstæðra hagsmuna að gæta miðað við verkkaupa. Verkís skal vera frjálst að vinna verkefni fyrir mótherja/samkeppnisaðila verkkaupa. Verkefnateymi Verkís skulu einungis veita mótherja/samkeppnisaðila verkkaupa þjónustu ef viðeigandi aðgreining er til staðar. Aðgreining skal fela í sér að fullnægjandi ráðstafanir séu gerðar til að fyrirbyggja raunhæfa hættu á að trúnaðarskylda Verkís gagnvart verkkaupa verði brotin.
9. Greiðsluskilmálar
Verkís gefur út reikninga fyrir veitta þjónustu, auk lögbundinna skatta og útlögðum kostnaði, í samræmi samning og/ eða gildandi verðskrá Verkís á hverjum tíma, eftir því sem við á.
Allar fjárhæðir sem koma fram á verðskrá eða í samningi eru án virðisaukaskatts. Við allar þóknunarfjárhæðir bætist virðisaukaskattur eftir því sem við á samkvæmt gildandi lögum.
Verkkaupa ber að greiða framlagða reikninga Verkís án frádráttar eða skuldajafnaðar, nema lög heimili annað. Gjalddagi er tilgreindur á reikningi og eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga, nema ef um annað er samið.
Ef reikningur er ekki greiddur á eindaga leggjast dráttarvextir við ógreiddar fjárhæðir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands á grundvelli III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Ef samningi er sagt upp eða felldur úr gildi tímabundið á Verkís skal verkkaupi greiða Verkís allan útlagðan kostnað fram að þeim tíma, sem og þóknun fyrir unna vinnu ásamt virðisaukaskatti fram að því er samningi er sagt upp. Verkkaupi skal jafnframt greiða Verkís fyrir alla vinnu við að ljúka eða slíta verkinu, eftir því sem við á.
Ef fleiri en einn aðili er verkkaupi bera þeir sameiginlega og óskipta ábyrgð á greiðslum til Verkís nema um annað hafi verið samið.
Berist Verkís beiðni um gögn eða upplýsingar frá opinberum eftirlitsaðilum eða í tengslum við væntanlegt eða yfirstandandi dómsmál sem tengist þjónustunni og sem Verkís er ekki aðili að, skal verkkaupi greiða Verkís allan þann kostnað sem hlýst af allri vinnu Verkís við að svara slíkri beiðni, samkvæmt gildandi gjaldskrá Verkís á hverjum tíma.
10. Ábyrgðir og tryggingar
Verkís ber skaðabótaábyrgð eftir almennum reglum skaðabótaréttar á beinu tjóni verkkaupa. Sönnunarbyrði um skaðabótaábyrgð Verkís hvílir á þeim sem heldur því fram að fyrirtækið beri skaðabótaábyrgð.
Verkís ber ekki ábyrgð, hvort sem um er að ræða skaðabótaábyrgð eða annars konar ábyrgð, á óbeinu eða afleiddu tjóni sem verkkaupi eða þriðju aðilar verða fyrir. Nema ófrávíkjanleg lög mæli fyrir um annað, s.s. í neytendaviðskiptum, skal heildarábyrgð Verkís gagnvart verkkaupa og öðrum rétthöfum vera takmörkuð við fjárhæð sem nemur einfaldri þeirri þóknun sem greiða ber Verkís fyrir viðkomandi verklið samkvæmt samkomulagi eða verksamningi.
Í verkefnum þar sem Verkís tekur að sér hlutverk byggingarstjóra takmarkast ábyrgð Verkís við hámark tryggingarverndar starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra. Takmörkun á ábyrgð á þó ekki við um tjón sem Verkís kann að valda af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
Ábyrgð Verkís kann jafnframt að takmarkast af öðrum orsökum, þ.m.t. eigin ábyrgð verkkaupa, annarra aðila á vegum verkkaupa eða þriðja aðila sem kann að bera ábyrgð á tjóninu.
Ef aðilar samningsins og aðrir sem rétt kunna að eiga á afurð verkefnisins eru fleiri en einn, skulu þeir skipta á milli sín þeirri takmörkuðu bótafjárhæð sem fallist er á skv. þessari grein. Bætur til verkkaupa skal lækka eða þær felldar niður ef sannað er að verkkaupi eða einhver á hans vegum hefur einnig verið valdur að tjóninu, í heild eða hluta, vegna ásetnings eða gáleysis. Auk þess ber verkkaupa í öllum tilvikum að takmarka tjón sitt í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar.
Ábyrgð Verkís gagnvart verkkaupa eða öðrum rétthafa fellur niður ef tjón stafar af gáleysi, yfirsjón, ásetningi, sviksemi, blekkingum eða öðru sambærilegu af hálfu verkkaupa eða starfsmanna hans.
Verkkaupi samþykkir að hafa ekki uppi kröfur gegn starfsfólki Verkís vegna tjóns sem þeir kunna að verða fyrir, sem hefur þó ekki áhrif á vinnuveitendaábyrgð Verkís á tjóni sem starfsfólk veldur í störfum sínum hjá Verkís.
Verkkaupa ber að halda Verkís skaðlausu og bæta, endurgreiða og vernda gegn hverju því tapi, tjóni, útgjöldum eða ábyrgð sem Verkís kann að verða fyrir, sem verður vegna eða í tengslum við eftirfarandi aðstæður:
- Hvers konar brot verkkaupa gegn skyldum sínum samkvæmt samningi og hvers kyns kröfur sem þriðji aðili eða annar rétthafi gerir eða hótar að gera og leiða af, orsakast af eða tengjast slíku broti, eða
- Hvers konar afhendingu verkkaupa á afurðum þjónustu Verkís, að hluta eða heild, til þriðja aðila án þess að getið hafi verið um þá fyrirvara sem fjallað er um í þessum viðskiptaskilmálum, að því er varðar ráðgjöf sem eingöngu er veitt í þágu verkkaupa.
11. Tímamörk krafna
Krafa verkkaupa eða annars rétthafa vegna taps eða tjóns skal sett fram án ástæðulausrar tafar og innan sanngjarns frests frá því að verkkaupi vissi eða mátti vita um tjónið. Krafan skal vera skrifleg og í tilkynningu um hana skal koma skýrt fram um hvaða verkefni ræðir, grundvöllur kröfu og fjárhæð hennar ef kostur er. Sé ekki tilkynnt um tjón innan frestsins getur réttur verkkaupa til bóta fallið niður. Í neytendaviðskiptum gilda lögbundnir frestir laga um þjónustukaup. Fyrning krafna ræðst af almennum reglum, nema aðilar í atvinnurekstri hafi skriflega samið um skemmri fyrningarfrest en lög kveða á um.
12. Uppsögn samnings og riftun
Aðilar samningsins geta sagt samningnum upp hvenær sem er með skriflegri tilkynningu til hins aðilans, með 30 daga fyrirvara. Samningsaðili getur rift samningnum tafarlaust ef um verulegar vanefndir er að ræða að undangenginni skriflegri viðvörun og hinn aðilinn sinnir ekki skyldum sínum eða bregst ekki við skriflegri áskorun um úrbætur innan sanngjarns frests. Riftun er einnig heimil ef breytingar á lögum, reglum eða stöðlum leiða til þess að Verkís er óheimilt að veita umrædda þjónustu.
Uppsögn eða riftun samkvæmt þessum ákvæðum hefur ekki áhrif á þau réttindi sem aðili hefur þegar öðlast, og allar greiðslur sem greiða ber til Verkís samkvæmt samningnum verða gjaldkræfar við framkvæmd uppsagnar eða riftunar.
Ákvæði þessara almennu viðskiptaskilmála halda gildi sínu þótt samningi ljúki eða hann renni út, honum sé sagt upp eða rift, eftir því sem við á. Þetta á sérstaklega við um ákvæði varðandi trúnað, varðveislu og notkun upplýsinga, hugverka- og eignarrétt, greiðslur fyrir þjónustu, dreifingu afurða Verkís, eftirgjöf og framsal, takmörkun ábyrgðar, tímamörk krafna, force majeure, umboð, lögsögu og varnarþing.
13. Force Majeure
Force Majeure merkir ófyrirséð og óviðráðanleg ytri atvik sem hindra eða tefja framkvæmd samningsins og aðili ræður ekki við, jafnvel þótt allri sanngjarnri varúð og viðleitni sé beitt. Slík atvik geta meðal annars verið náttúruhamfarir, eldsvoðar, flóð, jarðskjálftar, farsóttir, stríðsátök, hryðjuverk, verkföll, verkbönn, bilun á almenningsinnviðum (svo sem rafmagni, fjarskiptum eða neti), stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrir atburðir af sambærilegri stærðargráðu sem hindra eða gera ókleift að uppfylla samningsbundnar skyldur.
Hvorugur samningaðili skal talinn hafa vanefnt samning eða bera ábyrgð á töfum tengdum skyldum aðilanna við framkvæmd þjónustunnar samkvæmt samningnum vegna óviðráðanlegra ytri atvika sem þeim verður af sanngirni ekki kennt um. Hvor aðili um sig skal þó tilkynna hinum án tafar um slík atvik og gera það sem í hans valdi stendur til að sjá til þess að staðið verði við umsamin ákvæði.
14. Umboð
Með því að gangast undir samning við Verkís staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér efni þessara almennu viðskiptaskilmála, samþykkir gildi þeirra um viðskiptasamband Verkís og viðskiptavinar og skuldbindur sig til þess að hlíta þeim.
Verkkaupi samþykkir og fellst á ákvæði samnings og almennu viðskiptaskilmálanna fyrir sína hönd og eftir því sem við á, annarra rétthafa, hafi hann umboð til þess. Verkkaupi ábyrgist að sá aðili sem undirritar verksamning/ samkomulag fyrir hans hönd hafi fullt og gilt umboð til að skuldbinda hann samkvæmt samningnum.
Verkkaupi ábyrgist að hann muni upplýsa alla þriðju aðila sem hann heimilar að nota afurðir þjónustu Verkís og aðra aðila eftir því sem við á, um þá fyrirvara og takmarkanir á ábyrgð Verkís sem fram koma í samningi og almennu viðskiptaskilmálum þessum.
Sá sem undirritar samning fyrir hönd Verkís ber ábyrgð á samskiptum við verkkaupa varðandi framkvæmd þjónustunnar.
15. Lögsaga og varnarþing
Samningur við verkkaupa og almennu viðskiptaskilmálarnir skulu á engan hátt takmarka Verkís eða starfsmenn þess í að uppfylla þær skyldur og skuldbindingar sem hvíla á þeim samkvæmt íslenskum lögum.
Um samninginn og almennu viðskiptaskilmálana gilda íslensk lög og skal vísa ágreiningi þeim tengdum til Héraðsdóms Reykjavíkur náist ekki samkomulag milli aðila.
Framangreint skal ekki hamla Verkís að innheimta reikninga fyrir erlendum dómstólum, enda sé verkkaupi með heimilisvarnarþing erlendis.
