Skip to content
06/03/2026

Jarðhitafélag Íslands í heimsókn hjá Verkís

© Facebook síða Jarðhitafélags Íslands
Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á orkusviði, ræðir hér við fundargesti
Facebook síða Jarðhitafélags Íslands

Fimmtudaginn 26. febrúar síðastliðinn tók Verkís á móti félagsmönnum Jarðhitafélags Íslands í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Ofanleiti 2 í Reykjavík. Góð mæting var á viðburðinn og sköpuðust líflegar og faglegar umræður um jarðvarmamál og þróun verkefna á sviði orku.

Fjögur erindi frá sérfræðingum Verkís

Starfsmenn Verkís fluttu fjögur erindi þar sem varpað var ljósi á starfsemi fyrirtækisins og valin jarðvarmaverkefni:

  • Kynning á starfsemi Verkís – Eyþór Sigurðsson, viðskiptastjóri jarðvarma á orkusviði
  • Toppvél Þeistareykjum – Bjarni Steinar Gunnarsson, vélaverkfræðingur á orkusviði
  • Hitaveita Dalabyggð – Einar Benediktsson, vél- og orkutæknifræðingur á orkusviði 
  • Bein nýting jarðvarma – Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á orkusviði

Í erindunum var farið yfir bæði tæknilegar áskoranir og lausnir, auk þess sem rætt var um þróun og framtíðarsýn í nýtingu jarðvarma hér á landi.

Að erindum loknum var boðið upp á léttar veitingar og gafst þátttakendum gott tækifæri til að halda áfram samtali og efla tengsl innan greinarinnar.

Verkís þakkar Jarðhitafélagi Íslands kærlega fyrir komuna og góða samveru.

Bjarni Steinar Gunnarsson, vélaverkfræðingur á orkusviði © Facebook síða Jarðhitafélags Íslands
Einar Benediktsson, vél- og orkutæknifræðingur á orkusviði © Facebook síða Jarðhitafélags Íslands
Eyþór Sigurðsson, viðskiptastjóri jarðvarma á orkusviði © Facebook síða Jarðhitafélags Íslands
Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á orkusviði, ræðir hér við fundargesti
© Facebook síða Jarðhitafélags Íslands