Steingrímur Jónsson ráðinn útibússtjóri Verkís á Austurlandi
Steingrímur Jónsson byggingafræðingur tók við stöðu útibússtjóra Verkís á Austurlandi á Egilsstöðum 2. febrúar 2026.
Steingrímur er útskrifaður byggingafræðingur frá VIA University College í Danmörku 2017 og er jafnframt húsasmíðameistari með byggingastjóraréttindi. Hann býr yfir víðtækri reynslu af verkefnastjórnun, framkvæmdum og byggingarstjórn, bæði hérlendis og erlendis.
Undanfarin ár starfaði Steingrímur sem verkefnastjóri framkvæmda og viðhalds hjá Vatnajökulsþjóðgarði, þar sem hann bar ábyrgð á viðhaldi og nýframkvæmdum fasteigna og mannvirkja. Þar áður starfaði hann sem verkefnastjóri framkvæmdamála hjá Sveitarfélaginu Múlaþingi. Einnig hefur hann starfað við verkefna- og byggingarstjórn í Danmörku og kom meðal annars að stórum og flóknum iðnaðar- og byggingarverkefnum.
Steingrímur hefur starfað í byggingageiranum frá árinu 1997 og hefur sterkan bakgrunn í bæði hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja, auk reynslu af gæðastjórnun, kostnaðaráætlunum og verkstýringu.
Verkís er með öfluga starfsemi á Austurlandi og mun ráðning Steingríms styrkja enn frekar þjónustu fyrirtækisins og tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila á svæðinu.
Við bjóðum Steingrím hjartanlega velkominn til starfa.
