Skip to content
19/02/2026

Álagsprófanir á brúnni yfir Þjórsá – Verkís sá um mælingar

Álagsprófanir fóru fram á brúnni yfir Þjórsá þriðjudaginn 10. febrúar síðastliðinn í tengslum við undirbúning fyrirhugaðra efnis- og tækjaflutninga vegna uppbyggingar vindorkuvers við Vaðöldu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Vegagerðina og Landsvirkjun, þar sem Verkís kom að mælingum og gagnaöflun.

Markmið prófananna var að staðfesta forsendur og niðurstöður reiknilíkana um burðarþol brúarinnar og meta öryggi hennar gagnvart þyngstu fyrirhuguðu flutningunum. Til skoðunar er að heimila flutninga með allt að 270 tonna heildarþyngd, sem væri umfram það sem áður hefur tíðkast á brúnni.

Ítarlegar mælingar á hegðun brúarinnar

Tæknimenn frá Rambøll og mælingamenn frá Verkís, í samstarfi við brúarvinnuflokk Vegagerðarinnar, settu upp umfangsmikinn mælibúnað á brúna sem liður í undirbúningi prófananna.

Meðal annars voru notaðir:

  • hröðunarmælar til að greina titring,

  • streitunemar til að mæla álag í burðarvirkjum,

  • hallamælar á undirstöðum,

  • alstöðvar til að mæla niðurbeygju brúarinnar undir álagi.

Með þessum mælingum fæst nákvæmt yfirlit yfir raunverulega hegðun brúarinnar undir þungu álagi og hægt er að bera saman mæligögn við fyrirliggjandi reiknilíkön.

Næstu skref

Niðurstöður mælinganna verða nýttar til að taka ákvörðun um hvort heimila megi umrædda flutninga án frekari aðgerða. Ef í ljós kemur að burðarþol brúarinnar uppfyllir ekki kröfur vegna þyngstu flutninganna kemur til greina að ráðast í styrkingar á völdum stöðum.

Stefnt er að því að vinna úr mæligögnum og uppfæra reiknilíkön fyrir lok mánaðarins. Verkefnið er umfangsmikið og hefur undirbúningur staðið yfir í langan tíma með aðkomu fjölmargra sérfræðinga.

Sjá fleiri myndir hér

Heimsmarkmið