Skip to content
23/01/2026

Opnunarhátíð starfsstöðvar Verkís á Akureyri

Í gær, fimmtudag 22. janúar, fór fram opnunarhátíð nýrrar starfsstöðvar Verkís á Akureyri. Síðastliðið haust flutti skrifstofan starfsemi sína í nýjan skrifstofuturn á Norðurtorgi og er nú staðsett á 2. hæð hússins.

Í vikunni bættist við nýr matsalur og mötuneyti og af því tilefni var haldin opnunarhátíð til að fagna þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað. Starfsfólk tók vel á móti viðskiptavinum, samstarfsaðilum og verktökum, þar sem boðið var upp á léttar veitingar.

Nýtt skrifstofurými ásamt mötuneyti bætir vinnuaðstöðu starfsfólks til muna, skapar betri aðstöðu til samveru og gefur jafnframt tækifæri til að fjölga í starfsmannahópnum og byggja upp enn öflugri starfsemi og viðskipti á Norðurlandi.

Starfsstöð Verkís á Akureyri er ein af ellefu starfsstöðvum fyrirtækisins víðs vegar um landið og gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við verkefni og viðskiptavini á Norðurlandi.

Opnunarhátíð Austursíða 6
Ragnar Bjarnason útibússtjóri Verkís á Norðurlandi ávarpar gesti.
Egill Viðarsson framkvæmdastjóri Verkís ávarpar gesti.
Ragnar útibússtjóri Verkís ásamt Lísu og Birgi arkitektum frá Arkís.

Verkís sá um alla verkfræðihönnun nýrrar starfsstöðvar. Arkitektar voru Arkís fyrir skrifstofurými og matsal Verkís. Úti og inni arkitektar fyrir húsnæðið í heild.

Heimsmarkmið