10/09/2020

Hús íslenskunnar – Vinna hafin við uppsteypu á efstu hæð

Hús íslenskunnar
Hús íslenskunnar ágúst 2020

Hús íslenskunnar, framkvæmdir ganga vel. Vinna við að steypa þriðju og efstu hæð hússins er hafin, mánuði á undan áætlun og verið er að þurrka upp kjallara hússins svo hægt sé að hefja þar innivinnu.

Fjallað er um verkefnið í frétt á vef RÚV. Þar er haft eftir Karli Pétri Jónssyni, verkefnastjóra upplýsinga- og kynningarmála hjá Framkvæmdasýslu ríkisins að framkvæmdirnar séu vel skipulagðar og það eigi eflaust sinn þátt í að sumir þættir verksins séu á undan áætlun. ÍSTAK er verktaki verksins.

Í frétt RÚV er einnig myndband þar sem má stöðu framkvæmdarinnar frá upphafi og þangað til í lok ágúst.

Húsið verður eins og sívalningur í laginu. Karl Pétur segir í samtali við ruv.is að sívalningur sé nokkuð flókið form að vinna með. Þá sé bygging hússins einnig flókin tæknilega. Sérhönnuð rými verða fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á íslenskum skinnhandritum.

Verkís sér um aðstoð á framkvæmdatíma og hafði umsjón með allri verkfræðihönnun og sá um burðarþolshönnun og loftræsi- og lagnahönnun, sjá nánar hér. 

Áætlað er að húsið verði tilbúið haustið 2023.

Hús íslenskunnar
Hús íslenskunnar ágúst 2020