03/06/2020

Verkís skilar sjálfbærniskýrslu í annað sinn

Verkís skilar sjálfbærniskýrslu
Ísafjarðardjúp

Verkís skilar sjálfbærniskýrslu í annað sinn. Verkís hefur skilað sjálfbærniskýrslu vegna sáttmála SÞ um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact) fyrir árið 2019. Samhliða skilunum var undirsíða á heimasíðu okkar um sjálfbærni uppfærð.

Samfélagsábyrgð með sjálfbærni að leiðarljósi hefur birst í starfsemi Verkís frá upphafi, svo sem í gæðaferlum og sérstökum áherslum á umhverfis- og öryggismál.

Verkís tekur hlutverk sitt sem þátttakandi í samfélaginu alvarlega og leitar stöðugt nýrra leiða til að veita ráðgjöf sem styður við uppbyggingu sjálfbærra samfélaga.

Verkfræðingar og hönnuðir eru áhrifavaldar þegar kemur að sjálfbærni og tækniþróun, enda oft á tíðum lykilaðilar í rannsóknum og verkefnum sem tengjast nýsköpun. Í störfum okkar horfum við í átt að sjálfbærni og leggjum áherslu á að lágmarka neikvæð áhrif af þeim verkefnum sem við höfum aðkomu að.

Á síðasta ári tókum við til dæmis virkan þátt í umræðu og fræðslu um örugga rafbílahleðslu og veittum einstaklingum, húsfélögum og fyrirtækjum ráðgjöf varðandi hleðsluaðstöðu. Við bentum á mikilvægi sjálfbærni í byggingariðnaði og vorum áfram leiðandi á sviði ráðgjafar og hönnunar fyrir umhverfisvæna orkuvinnslu.

Kaffikorgur og bananahýði drjúgur hluti úrgangs

Það er ekki nóg að benda bara öðrum á hvað þau geta gert betur, heldur vorum við einnig dugleg að líta í eigin barm í von um að gefa sjálfbærni aukið vægi innan fyrirtækisins. Við ákváðum m.a. að skoða lífrænan úrgang sem fellur til í kaffihornum og mötuneyti.

Í eina viku var magn lífsræns úrgangs vigtað og greint í hverju kaffihorni og á hverjum degi var að finna upplýsingar í mötuneytinu um hversu miklu var leift daginn áður. Kaffikorgur og bananahýði reyndust drjúgur hluti úrgangs í kaffihornum og það var gaman að sjá hversu lífleg umræða skapaðist meðal starfsfólks á meðan á mælingum stóð. Mælingarnar juku greinilega meðvitund starfsfólks um matarsóun sem er gífurlega jákvætt.

Í skýrslu Verkís fyrir árið 2019 segjum við m.a. frá nokkrum verkefnum þar sem við höfum veitt ráðgjöf á sviði sjálfbærni. Þar má meðal annars nefna nýja byggð á Ártúnshöfða, Hús íslenskunnar, Akhalkhalaki – vatnsaflsvirkjun í Georgíu og Blikastaði – sjálfstæðan atvinnukjarna.

Verkís skilar sjálfbærniskýrslu
Ísafjarðardjúp