Skip to content
18/12/2025

Verkís hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2025

© www.fka.is
Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2025 haldin við hátíðlega athöfn
www.fka.is
Verkís hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2025 fyrir markvisst og árangursríkt starf í jafnréttismálum. Viðurkenningin er veitt þeim vinnustöðum sem ná settum markmiðum Jafnvægisvogarinnar og sýna í verki skýra skuldbindingu til jafnræðis í efsta lagi stjórnunar.

Vinnustaðir sem setja jafnrétti í forgang eru eftirsóknarverðir fyrir framsækið fólk, enda eykur aukið jafnrétti bæði starfsánægju og vellíðan á vinnustað. Fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem ná markmiðum Jafnvægisvogarinnar hljóta sérstaka viðurkenningu sem veitt er við hátíðlega athöfn í október ár hvert.

Um Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvog FKA er hreyfiaflsverkefni sem unnið er í samstarfi við Creditinfo, Deloitte, dómsmálaráðuneytið, Pipar\TBWA, RÚV, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá. Markmið verkefnisins er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum á Íslandi, með það að leiðarljósi að kynjahlutföll í framkvæmdastjórn eða efsta stjórnunarstigi verði að lágmarki 40/60.

Viðurkenningin er staðfesting á áframhaldandi vinnu Verkís í þágu jafnréttis, jafnræðis og ábyrgðar í mannauðsmálum.

Heimsmarkmið

Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2025 haldin við hátíðlega athöfn
© www.fka.is