06/11/2018
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar. Verkís var með eitt erindi á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar þann 2. nóvember síðast liðinn.
Ráðstefnan var sú sautjánda í röðinni, en ráðstefnan er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Halldór Bogason, byggingarverkfræðingur hjá Verkís hélt erindið Tjónagreining á brúnni yfir Steinavötn í Suðursveit.