Fjölnota íþróttahús á Selfossi
Fjölnota íþróttahús á Selfossi, Verkís mun sjá um alla verkfræðilega hönnun ásamt hönnunar- og verkefnastjórn á fjölnota íþróttahúsi á lóð UMFS á Selfossi. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Alark arkitekta ehf. og sveitarfélagið Árborg.
Í þessum áfanga er gert ráð fyrir íþróttahúsi sem hýsir hálfan knattspyrnuvöll og aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir og mun húsið rísa við suðurenda núverandi gervigrasvallar. Áætlað er að fyrsti áfangi hússins verði tilbúinn til notkunar 1. ágúst 2021.
Hönnun íþróttahússins byggir á frumhönnun Verkís hf. og Alark arkitekta ehf. Verkefnið felst í fullnaðarhönnun á íþróttahúsinu, gerð og útgáfu á útboðsgögnum fyrir almennt útboð í þremur hlutum: jarðvinnu, húsbyggingu, innréttingum og búnaði.