02/05/2019

Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri

Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri
Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri

Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri. Á árunum 2002-2003 hóf Norðurorka tilraunaboranir eftir heitu vatni á Hjalteyri, 20 km norðan Akureyrar. Boranir gáfu góða raun og var strax ráðist í lagningu aðveitulagnar til Akureyrar. Stækkun bæjarins hefur verið ör og nú er unnið að nýrri aðveitu frá Hjalteyri til styrkingar hitaveitukerfinu.

Akureyri er ört vaxandi bær og þörf fyrir aukið heitt vatn mikið. Helsta heitavatnssvæðið í nágrenni Akureyrar var í Eyjafjarðarsveit (Laugaland-Tjarnir) þar sem aðrennsli er takmarkað og niðurdráttur í borholum þar mikill við aukna dælingu.

Vegna þessa hefur frekari leit eftir heitu vatni staðið yfir um árabil og víðtækar rannsóknir verið gerðar á undanförnum árum. Vísbendingar komu fram um að á Hjalteyri væri að finna heitt vatn, en Hjalteyri er um 20 km norðan Akureyrar.

NO ákvað að hefja tilraunaboranir þar á árunum 2002-2003, en þá var vatnsbússkapur Norðurorku orðinn erfiður. Boranir við Hjalteyri gáfu góða raun og strax árið 2003 var ráðist í lagningu DN300 mm aðveitulagnar frá Hjalteyri til Akureyrar.

Með stækkun bæjarins og fjölgun íbúa hefur þörfin fyrir hitaveituvatn aukist að sama skapi. Aflþörf hefur verið mætt með verulega aukinni dælingu vatns frá Hjalteyri með tilheyrandi kostnaði. Vísbendingar voru um að meira vatn væri að vænta frá Hjalteyri. Vegna þessa hefur borunum á Hjalteyri verið haldið áfram að undanförnu og þar hefur fengist verulega meira heitt vatn.

Síðla árs 2017 ákvað NO að undirbúa lagningu nýrrar aðveitu frá Hjalteyri til styrkingar hitaveitukerfinu. Ákveðið var að nýja stofnlögnin yrði DN500 mm og hún nái frá Hjalteyri að gatnamótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis til tenginga við öflugar stofnæðar dreifikerfis hitaveitunnar. Áætluð heildarlengd stofnæðarinnar er um 20,5 km. Útboð á efni fór fram á haustmánuðum 2017 og framkvæmdir við fyrsta áfanga þessa verks hófst árið 2018.

Framkvæmd nýju stofnæðarinnar hefur verið skipt í fjóra meginhluta og eru verklok áætluð árið 2021-2022. Áfangar voru númeraðir frá norðri í upphafi, en síðar var ákveðið að röð framkvæmda yrði önnur og áfangi framkvæmdar innanbæjar var hinn fyrsti í röðinni – Sjá töflu.

 Áfangi ár Verkhluti  Lengd
 1 – 4  2017 – 2018  Frumhönnun verks
 4  2018  Stofnlögn innanbæjar  1,6 km
 1  2019  Hjalteyri – Ós  6,4 km
 2  2020  Ós – Skjaldarvík  7,5 km
 3  2021 – 2022  Skjaldarvík – Akureyri  5,0 km
 Alls:  20,5 km

Frumhönnun verksins hófst haustið 2017 og var þá lagnaefni boðið út á EU-svæðinu. Verkhönnun fjórða áfanga fylgdi í kjölfarið og var það verk boðið út í mars 2018.

Fjórði áfangi framkvæmdarinnar er stofnlögn innanbæjar (1,6 km). Stofnæðin liggur meðfram Hringvegi (1) frá gatnamótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis, undir Glerá og norður fyrir hringtorg við Hringveg (1) og Hlíðarbraut. Þessi áfangi er stystur í kílómetrum talið en flækjustigið er mikið vegna hvers kyns annarra lagna á leiðinni, þverunar undir Glerá og umferðarþunga um Hringveg (1). Framkvæmd þessa verkáfanga gekk mjög vel.

Framkvæmdir við fyrsta áfanga verksins, lagning stofnæðarinnar frá Hjalteyri að Ósi (6,4 km), hafa verið boðnar út og eru verklok áætluð um miðjan september á þessu ári. Framkvæmdir eru þegar hafnar.

Framkvæmdir við annan áfanga verksins, lagning stofnæðarinnar frá Ósi að Skjaldarvík (7,5 km), eru áætlaðar á næsta ári, 2020. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir verði snemma árs, meðal annars vegna lagningu stofnæðarinnar undir Hörgá sem getur verið vatnsmikil í leysingum. Hörgá er kunn silungs­veiðiá og tímasetningar framkvæmda taka mið af þessum þáttum. Við hönnun er horft til reynslu af lagningu DN300 árið 2003 og lagningu DN500 undir Glerá síðastliðið haust.

Verkið er í hönnun og er útboð framkvæmda fyrirhugað um miðjan nóvember 2019. Samhliða framkvæmdum við fyrsta áfanga (Hjalteyri -Ós) verður unnið að lagningu stofnæðar í Þórunnarstræti milli gatnamóta Glerárgötu og Þingvallastrætis vegna tenginga við megin dælustöð NO við Þórunnarstræti en þar er einnig annar af stórum miðlunargeymum veitunnar.

Verkís hefur séð um útboð á efni, frumhönnun stofnæðar og verkhönnun á áföngum eitt, tvö og fjögur. Ekki hefur verið samið um hönnun þriðja áfanga.

Auk þessara verka eru fyrirhugaðar breytingar á dælustöð við Þórunnarstræti, tengingar við núverandi stofnlagnir, boranir, borholuhús og ný dælustöð á Hjalteyri og fleira.

Glerá veitt yfir framkvæmdasvæði í stórum vegagerðarræsum. Framkvæmd að hausti þegar lágmarksrennsli er í ánni.

Verkís veitir fjölþætta þjónustu og ráðgjöf við undirbúning og hönnun veitumannvirkja, svo sem fyrir fráveitur, hitaveitur og vatnsveitur.

Meðal nýlegra verkefna á þessu sviði, auk þess sem fjallað er um hér að ofan, má nefna byggingu hreinsistöðva ásamt lagningu frárennsliskerfis á Akranesi, í Borgarnesi og á Kjalarnesi, hreinsistöðvar í Bergen og  hönnun á aðalhitaveitudælustöð og heitavatnsgeymi á Selfossi.

Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri
Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri