Ræddu fráveitulausnir fyrir minni sveitarfélög
Ræddu fráveitulausnir fyrir minni sveitarfélög. Í gær stóð Verkís fyrir morgunverðarfundi um fráveitulausnir fyrir minni sveitarfélög. Fundurinn var haldinn í starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri og var hann ágætlega sóttur. Sköpuðust líflegar umræður um stöðu fráveitumála í sveitarfélögum þátttakenda.
Ragnar Bjarnason, byggingarverkfræðingur og útibússtjóri Verkís á Akureyri, fjallaði um reglur og kröfur varðandi fráveitumál sem sveitarfélög standa fyrir.
Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindafræðingur á Samgöngu- og umhverfissviði Verkís, fjallaði annars vegar um ástand fráveitumannvirkja hér á landi og hins vegar um leiðir sem standa minni sveitarfélögum til boða í fráveitumálum.
Verkís veitir fjölþætta þjónustu og ráðgjöf við undirbúning og hönnun veitumannvirkja. Fyrirtækið býr yfir sérfræðingum með áratuga reynslu á sviði veitumála þegar kemur að hönnun lagna, vélbúnaðar, rafbúnaðar og stjórnkerfa.