Hjólað í vinnuna 2018 – Verkís í þriðja sæti
Hjólað í vinnuna 2018, endaði Verkís í þriðja sæti í keppninni. Verðlaunin voru afhent í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag.
Verkís keppti í flokki fyrirtækja með 130 – 399 starfsmenn en þar voru 48 vinnustaðir skráðir til leiks. Hér má sjá lista yfir fyrirtækin sem voru í þremur efstu sætunum.
1. Nova
2. Hafrannsóknastofnun
3. Verkís
Á lóð Verkís við Ofanleiti 2 í Reykjavík er að finna glæsilegt hjólaskýli sem er mikið notað af starfsfólki. Þar er hægt að geyma hjólið á öruggum stað og þar er einnig að finna búnað til að sinna helstu viðgerðum og viðhaldi á hjólinu.
Verkís mun taka virkan þátt í WOW Cyclothon í ár líkt og síðustu ár og mikill hugur í keppendum.