27/03/2018

Flöskuskeytið aðeins 30 kílómetra frá landi

Flöskuskeytið
Flöskuskeyti 27. mars

Flöskuskeytið með vínylplötu Ásgeirs Trausta, eða Album in a bottle, er nú aðeins um þrjátíu kílómetra frá landi, nánar tiltekið Austfjörðum Íslands. Skeytið hefur ekki komið svo nálægt landi frá því að það sigldi framhjá Snæfellsnesi á fyrstu vikunum eftir að því var varpað í sjóinn í byrjun nóvember.

Miðað við vindaspá næstu daga er raunhæft að ætla að skeytið gæti náð landi í vikunni. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með ferðum skeytisins og að sjálfsögðu að reyna að finna það, komi það upp á land.

Skeytið hefur lagt að baki tæplega fimm þúsund kílómetra í sjó. Um tíma leit út fyrir að skeytið myndi enda ferð sína í Færeyjum en svo varð ekki. Fyrir mánuði komst skeytið svo norður fyrir heimskautsbaug.

Flöskuskeytið er útbúið með GPS-staðsetningarbúnaði og gervihnattasendi sem gerir fólki kleift að fylgjast með ferðalögum plötunnar. Búnaðurinn sendir frá sér merki á sex klukkustunda fresti.

Flöskuskeytið
Flöskuskeyti 27. mars