19/03/2019
Nýsköpunarmót Álklasans
Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag, þriðjudag 19. mars. Þar verður m.a. til umfjöllunar framþróun á sviði snjallvæðingar, minni orkunotkunar og tæknilausna í áliðnaði.
Á deginum verður m.a. fyrirlestur um verkefnið Karmøy í Noregi sem HRV vann að, sem er fyrirtæki í eigu Verkís og Mannvits.
Verkefnið er byggt á nýjustu útfærslu fyrirtækisins á eigin kertækni með áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif framleiðslunnar og tryggja bestu mögulegu orkunýtni í framleiðsluferlinu
Viðskiptablaðið fjallaði um Nýsköpunarmótið í gær, sjá nánar hér.