05/03/2019

Þrívíð laserskönnun

Þrívíð laserskönnun
þrívíð laserskönnun

Þrívíð laserskönnun. Verkís hefur nýtt 3D-laserskanna í verkefnum undanfarin tvö ár. Með skannanum verður uppmæling mannvirkja og eða umhverfis mun fljótlegri og nákvæmari en hægt er að skanna mannvirki bæði að utan og innan og setja saman í eina heild.

Skönnunin nýtist sem undirlag við hönnun eða gerð ýmissa greininga. Með því að beita skönnun er til dæmis hægt að minnka áhættu og ósamræmi í viðhaldi, endurbótum og viðbyggingum.  Á framkvæmdartíma er hægt að beita skönnun í eftirliti. Þannig er auðveldlega hægt að bera saman hönnunarlíkön við eiginlega framkvæmd.

Margir aðrir notkunarmöguleikar eru fyrir hendi, má þar nefna skrásetningu fornminja, skipaiðnað, gæðaeftirlit í framleiðslu og til vettvangsrannsókna.  Verkís hefur nýtt afurðir úr þrívíddarskönnun með góðum árangri í verkefnum innanlands sem og erlendis. Sérfræðingar okkar nýta tæknina til hagræðingar fyrir viðskiptavini.

Við höfum áhuga á að kynna þjónustu okkar við þrívíða laserskönnun fyrir þínu fyrirtæki.
Hafðu samband og við komum í heimsókn.

Tengiliður:
Davíð Friðgeirsson – BIM ráðgjafi / Byggingafræðingur
df@verkis.is
Þrívíð laserskönnun
þrívíð laserskönnun