Verkhönnun þriðja áfanga Arnarnesvegar lokið
Verkhönnun þriðja áfanga Arnarnesvegar lokið. Vegagerðin hefur boðið út þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Verkís annaðist for- og verkhönnun vegarins ásamt því að sjá um verkefnastýringu, veghönnun, brúarhönnun, samgöngutækni, jarðtækni, lýsingarhönnun, landslagshönnun og gerð útboðsgagna. Verkís hefur unnið myndband sem sýnir þrívíddarlíkan af fyrirhuguðum framkvæmdum.
Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg en í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15 þúsund manns. Þá mun vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna.
Framkvæmdirnar felast í lagningu Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi. Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar.
Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir, snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsingu og lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar.
Auk vegagerðarinnar verða eftirfarandi mannvirki byggð:
Akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg.
Göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir stofnstíga í Reykjavík og Kópavogi.
Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell / Jaðarsel.
Undirgöng undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg.
Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar.
Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Vatnsendavegar.
Stofnstígur gangandi og hjólandi frá Rjúpnavegi yfir í Elliðaárdal.
Göngu- og hjólabrú á Dimmu, sem er nafnið á þessum hluta Elliðaáa.
Tilboð í verkið verða opnuð 18. apríl. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist sumarið 2023 og áætlað er að verkinu ljúki haustið 2026.
Verkið er hluti af Samgöngusáttmálanum sem gerður var árið 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.