Verkefni

Reykjavíkurflugvöllur

Reykjavíkurflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi.

Þar sem nokkuð er um millilanda umferð um völlinn þó mestur hluti umferðarinnar sé innanlandsflug.

Reykjavíkurflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi þar sem nokkuð er um millilanda umferð um völlinn þó mestur hluti umferðarinnar sé innanlandsflug. Vegna staðsetningar flugvallarins nálægt Landspítalanum við Hringbraut gegnir hann mikilvægu hlutverki fyrir sjúkraflug.
 
Verkefnið snýr að endurbyggingu beggja aðalflugbrauta Reykjavíkurflugvallar og aðlögun SV-NA brautar, bygging og aðlögun akstursbrauta og endurnýjun rafbúnaðar. Forathuganir, hönnun og aðstoð við umhverfismat var meðal þeirrar þjónustu sem Verkís veitti á verkefnatíma. Ásamt verkefnisstjórnun á undirbúnings- og  framkvæmdatíma. Þ.m.t. skipulagningu öryggismála, gerð kennsluefnis og kennslu á öryggisnámskeiðum og skiptingu verks í áfanga og svæði til þess að tryggja samfelldan rekstur flugvallarins á framkvæmdatíma.
 
Verkís hafði umsjón með forathugun, hönnun, verkefnastjórn og framkvæmdaeftirliti ásamt gerð kennsluefnis og kennsla á öryggisnámskeiðum.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Vatnsmýri

Verktími:

1999-2003

 

Heimsmarkmið