Verkís með tvö erindi á Degi verkfræðinnar
Verkís með tvö erindi á Degi verkfræðinnar. Dagur verkfræðinnar fer fram þann 21. október nk. Haldnir verða fyrirlestrar og kynningar í þremur opnum sölum en markmiðið með deginum er að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst að efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga. Í ár er Verkís með tvö erindi.
Lýsingarhönnun – dæmi frá Óðinstorgi og Stapaskóla
Dario Gustavo Nunes arkitekt og Tinna Kristín Þórðardóttir byggingafræðingur sem bæði eru lýsingarhönnuðir hjá Verkís.
Verkefni Verkís á Grænlandi – Hvað höfum við lært?
Sigurður Jón Jónsson, sviðsstjóri Byggingasviðs Verkís.